
Orri Harðar
Glatkistan hefur á skrá sinni í dag fjögur tónlistartengd afmælisbörn:
Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenórsöngvari er fimmtíu og átta ára gamall í dag, hann nam söng hér heima og á Ítalíu, hefur starfað m.a. í Íslensku óperunni, með Frostrósum og Mótettukórnum og haldið fjölda tónleika á Íslandi og erlendis. Jóhann Friðgeir hefur gefið út nokkrar sólóplötur auk þess að syngja á plötum annarra tónlistarmanna.
Orri Harðarson (1972-2025) trúbador og rithöfundur hefði átt afmæli í dag en hann lést fyrr á þessu ári. Orri vakti fyrst athygli í Músíktilraunum með hljómsveitinni Óþekktum andlitum frá Akranesi og síðan með Tregablandinni lífsgleði og öðrum Skagasveitum, hann lék aukinheldur á plötum annarra auk þess að annast upptökustjórn og útsetningar, mest vann hann þó einn enda gaf hann út nokkrar sólóplötur.
Þá hefði Sigurður Árnason einnig átt afmæli á þessum degi. Sigurður (1947-2020) lék á bassa með fjölda hljómsveita, einkum á sjöunda og áttunda áratugnum s.s. Náttúru, Tónum, Stólum, Sálinni, Reykjavík, Toxic og Klettum en vann í seinni tíð nær einvörðungu við upptökur, tók þá upp tugi eða hundruð plötur með Bubba Morthens, Jóhanni Helgasyni, Herberti Guðmundssyni, Kristínu Ólafsdóttur, Lúdó og Stefán, Start, Fræbbblunum og mörgum öðrum.
Og að síðustu er hér nefndur ljóð- og textaskáldið frá Raufarhöfn Jónas Friðrik Guðnason (1945-2023) en hann hefði átt afmæli á þessum degi. Jónas Friðrik var auðvitað kunnastur fyrir samstarf sitt við Ríó tríó en hann samdi einnig fjölda texta fyrir Björgvin Halldórsson, Mána, Sléttuúlfana, BG og Ingibjörgu, Diddú, Brimkló og Strumpana svo einungis fáein dæmi séu hér nefnd. Þess má geta að skáldið söng sjálfur eitt þekktasta Ríó-lagið, Allir eru að gera það.














































