Afmælisbörn 16. desember 2025

Ósk Óskarsdóttir

Í dag eru fimm tónlistartengd afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:

Tónlistarkonan Rakel Mjöll Leifsdóttir er þrjátíu og sex ára gömul á þessum degi. Rakel Mjöll vakti fyrst athygli í söngkeppni Samfés og hefur m.a.s. keppt í undankeppni Eurovision en hefur fyrst og fremst verið þekkt sem söngkona hljómsveita eins og Útidúr og Dream wife sem hefur verið að gera það gott í Bretlandi, en hefur einnig starfað með Sykri og Halleluwah.

Egill Rúnar Friðleifsson fyrrverandi kórstjórnandi er áttatíu og fimm ára gamall í dag. Egill sem er þekktastur fyrir að vera stofnandi og kórstjóri Kórs Öldutúnsskóla í Hafnarfirði stjórnaði þeim kór í fjörutíu ár en undir hans stjórn sendi kórinn frá sér nokkrar plötur auk þess að koma við sögu á nokkrum í viðbót. Þá starfaði Egill við dagskrárgerð í útvarpi og ritaði um tónlist í dagblöð um árabil.

Anna (Katrín) Richter fagnar á þessum degi tuttugu og átta ára afmæli sínu en hún hefur verið að senda frá sér smáskífur með frumsömdu efni sem skilgreina mætti sem folk / country tónlist. Fyrsta smáskífa hennar kom út árið 2021 en síðan þá hafa nokkrar slíkar komið út.

Tónlistarkonan Ósk Óskarsdóttir fagnar á þessum degi sextíu og sex ára afmæli sínu. Ósk lék á hljómborð og söng á sínum tíma í hljómsveitum á borð við Út úr blánum, Frumskógareddu og Seiðbandinu og hefur jafnframt gefið út nokkrar sólóplötur í eigin nafni með frumsömdu efni, þá fyrstu árið 1997.

Og á þessum degi hefði Szymon Kuran fiðluleikari og tónskáld átt afmæli, hann var Pólverji sem flutti til Íslands og starfaði hér til dauðadags 2005 en hann var fæddur 1955. Szymon starfrækti nokkrar sveitir hér á landi s.s. Kuran Swing, Kuran kompaní, Súld og Pól-ís, hann gaf ennfremur út og lék inn á fjölmargar plötur hérlendis.