
Sigfús Óttarsson
Á þessum degi eru sex afmælisbörn á skrá Glatkistunnar:
Ómar Diðriksson trúbador og hárskeri er sextíu og þriggja ára á þessum degi. Hann hefur starfrækt eigin sveitir, Síðasta sjens, Tríó Ómars Diðrikssonar og Sveitasyni, en hefur einnig gefið út nokkrar sólóplötur og í samstarfi við Karlakór Rangæinga. Hann býr nú í Noregi
Gréta Sigurjónsdóttir gítarleikari Dúkkulísanna frá Egilsstöðum er sextug og á því stórafmæli, Gréta er auðvitað þekktust fyrir framlag sitt með Dúkkulísunum sem sigruðu Músíktilraunir árið 1983 en hún hefur starfað að mestu fyrir austan og þá með sveitum eins og Teppinu hennar tengdamömmu, Ökklabandinu, Bergmáli, Hljómsveit Hreggviðs Jónssonar, XD3 og Nefndinni svo nöfn séu nefnd. Gréta sendi frá sér plötuna Glópagull árið 2000 og er enn að vinna tónlist.
Páll Ivan frá Eiðum eða Páll Ivan Slamnig Pálsson fagnar fjörutíu og fjögurra ára afmæli sínu á þessum degi. Páll Ivan sem er bassaleikari í grunninn hefur komið víða við í tónlistarsköpun sinni, hann nam í Bretlandi en hefur starfað með hljómsveitum á borð við Stórsveit Nix Noltes, Benn Hemm Hemm, Fersteini Spuna de la Cruz og Doom svo nokkur nöfn séu nefnd en hann hefur einnig sent frá sér sólóplötur. Þá var hann einn af stofnendum S.l.á.t.u.r.
Þá á bassaleikarinn Snorri Hergill Kristjánsson fimmtíu og eins árs afmæli á þessum degi en hann lék hér forðum á bassa með ýmsum misþekktum sveitum s.s. The Eighties (síðar Moonboots), Zorglúbb, Kalk og Klamedíu X.
Að síðustu er hér nefndur trommuleikarinn Sigfús (Örn) Óttarsson (Fúsi Óttars) frá Akureyri en hann er fimmtíu og átta ára gamall í dag. Sigfús vakti fyrst athygli með Baraflokknum en hefur síðan þá leikið með fjöldanum öllum af þekktum og óþekktum hljómsveitum, þar á meðal má nefna Rikshaw, Dægurlagapönksveitina Húfu, PKK, Jagúar, Alvöruna, Brimkló og KK-band en þó eru aðeins hér örfáar upptaldar.














































