
Guðjón Steinþórsson
Á þessum öðrum degi jóla er að finna þrjú afmælisbörn tengd íslenskri tónlist:
Trausti Júlíusson blaðamaður, plötugrúskari og tónlistargagnrýnandi er sextíu og tveggja ára gamall í dag. Trausti hefur fjallað um tónlist frá ýmsum hliðum og setið í ýmsum ráðum og nefndum tengdum íslenskri tónlist s.s. tónlistarsjóði Kraums. Trausti hefur ennfremur leikið með hljómsveitum eins og Vídeósílunum, Ást og Stunu úr fornbókaverslun.
Þá á Þórarinn Freysson bassaleikari hljómsveitarinnar Sixties fimmtíu og tveggja ára afmæli á þessum degi. Þórarinn hefur leikið inn á fjölda platna með hljómsveitinni Sixties en á yngri árum sínum lék hann með sveitum sem spiluðu öllu harðari tónlist, meðal þeirra má nefna In Memoriam, Mortuary og Bone China en auk þess hefur hann leikið á bassa með sveitum eins og Kinkí og T-Vertigo.
Og að síðustu er hér nefndur gítarleikarinn Guðjón Steinþórsson en hann var fæddur á þessum degi árið 1955. Guðjón lék með fjölda hljómsveita á sínum tíma og hér má nefna sveitir eins og Amon Ra, Blúsbrot Garðars Harðarsonar, Bumburnar, Goðgá og Heimavarnarliðið. Guðjón lést árið 2024.














































