
Markús Bjarnason
Þrjú afmælisbörn eru á skrá Glatkistunnar í dag:
Böðvar Guðmundsson rithöfundur sem er þekktastur fyrir Vesturfarasögurnar Hýbýli vindanna og Lífsins tré, er áttatíu og sjö ára gamall í dag. Böðvar var virkur á vinstri arminum hér áður fyrr og kom þá oft fram sem trúbador þar sem hann flutti eigin lög og ljóð. Hann gaf jafnframt út tvær plötur á sínum tíma, fimm laga smáskífuna Þjóðhátíðarlög 1974 (1974) og breiðskífuna Það er engin þörf að kvarta (1981). Hann hefur einnig samið og þýtt fjölda söngtexta, m.a. fyrir leikhús og má þar nefna Emil í Kattholti, Kysstu mig Kata og Ronju ræningjadóttur.
Haukur Tómasson tónskáld er sextíu og sex ára gamall á þessum degi. Haukur nam píanóleik og tónsmíðar í Evrópu og Bandaríkjunum og hefur unnið til ýmissa verðlauna fyrir samtíma tónlist sína hér heima og erlendis. Þá hefur tónlist hans komið út á fjölda platna, m.a. í samstarfi við Caput hópinn.
Og að síðustu er hér nefndur tónlistarmaðurinn Markús Bjarnason sem er fjörutíu og sjö ára gamall á þessum degi. Markús hefur starfað undir ýmsum nöfnum og með fjölmörgum hljómsveitum í gegnum tíðina og hér má nefna Markús & the diversion sessions, Skáta, Markús, Haugur, Campfire backtracks, Sofandi og Substandard suffix svo einhverjar séu nefndar.














































