
Kjartan Óskarsson
Í dag eru tvö afmælisbörn á lista Glatkistunnar:
Klarinettuleikarinn Kjartan Óskarsson fagnar sjötíu og tveggja ára afmæli á þessum degi. Kjartan nam klarinettuleik hér heima og í Austurríki og hefur starfað á ýmsum vettvangi sem tónlistarmaður og -kennari, hann hefur t.a.m. starfað með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Chalumeaux tríóinu og Blásarasveit Reykjavíkur (sem hann stofnaði), stjórnað lúðrasveitum í Færeyjum og heima á Íslandi, leikið með hljómsveitum í leikhúsum borgarinnar og Íslensku óperunni, og leikið inn á fjölda platna svo fátt eitt sé hér upp talið.
Aðalsteinn Ísfjörð (Sigurpálsson) harmonikkuleikari og múrarameistari hefði átt afmæli þennan dag en hann lést árið 2022. Aðalsteinn sem var Húsvíkingur kom víða við á sínum ferli sem harmonikkuleikari, gaf út sólóplötur og í samvinnu við aðra, og lék með mörgum hljómsveitum í gegnum tíðina. Þar má nefna sveitir eins og Hljómsveit Illuga, Víbra, Húsavíkur-Hauka og GH kvartett en hann kenndi enn fremur á harmonikku við Tónlistarskólann á Húsavík og var einn af stofnendum Harmonikkufélags Þingeyinga.














































