Þann 11. desember mun hljómsveitin Dikta halda ljúfa jólatónleika á Café Rosenberg sem hefur nú opnað aftur á nýjum stað við Tryggvagötu 22, beint á móti Gauknum.
Viðburður: Jólatónleikar Diktu 2026
Dagsetning: Föstudagurinn 11. desember 2026
Tónleikarnir hefjast: kl. 21:00
Staður: Café Rosenberg, Naustinni / Tryggvagötu 22, 101 Reykjavík
Miðasala: tix.is
Miðaverð: 7.990 kr.
Það þarf vart að kynna Diktu fyrir Íslendingum enda fyrir margt löngu búnir að syngja sig og spila inn í hjörtu þjóðarinnar með hverjum smellinum á fætur öðrum sem fengið hafa að hljóma á öldum ljósvakans.
Síðustu ár hefur hljómsveitin jafnan haldið tónleika á þessum árstíma og spilað jólalög í bland við sín eigin lög í sparibúningi. Engin breyting verður á því í ár og verður hugljúfur jólaandinn í algeru fyrirrúmi á Café Rosenberg þann 11. desember næst komandi.














































