Á útlagaslóð (Þjóðhátíðarlag 1945)
(Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Árni úr Eyjum (Árni Guðmundsson)
Enn þá er fagurt til fjalla
sem forðum í Eyvindar tíð,
þegar sig hjúfraði Halla
að hjarta hans, viðkvæm og blíð.
Þegar um fjöllin þau fóru
sem friðlausir útlagar þá,
ást sinni eiða þau sóru
sem öræfin hlustuðu á.
Skiptust á skammdegishríðir,
skuggaleg haustkvöld og löng
og sóldagar, sælir og blíðir
með seiðandi vorfuglasöng.
Um auðnina kvöldgolan andar
ilmi frá horfinni tíð.
Geyma þar sólgullnir sandar
sagnir um örlagahríð.
[á plötunni Undurfagra ævintýr: Lög Oddgeirs Kristjánssonar – ýmsir]














































