Á vorsins vængjum

Á vorsins vængjum
(Lag og texti: Björn Hafþór Guðmundsson)

Á vorsins vængjum
ég vald´að gleyma mér
og svíf´ í sumar inn
í sól með þér.

Á æsku árum
mér innra kveiktir bál
já, lífs míns ástareld
í ungri sál.

Þig ævi alla
ég eina fann.

Af heilum huga
Þér heitið vann.

Í húm´að hausti
enn höldum saman braut,

til enda alla tíð
þig elska hlaut.

En þó að ætíð vær´ei sumar sól
ei sæla tóm á okkar leiðum.
Og þó að klífa þyrftum stundum háan hól
var heitið okkar traust og skjól.

Og víst þótt vetur
oss vitji kaldur senn
ei sól í sinni þó
mun setjast enn.

Þig ævi alla
ég eina fann.
Af heilum huga
þér heitið vann.

Á vorsins vængjum
ég vald´að gleyma mér
og svíf´í sumar inn
í sól með þér.

[á plötunni Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar – Austfirskir staksteinar III]