Alheimurinn

Alheimurinn
(Lag og texti: Ragnheiður Eiríksdóttir og Gunnar L. Hjálmarsson)

Alheimurinn!
Það botnar enginn í honum!
Alheimurinn!
Hann er svo svaka stór!
Alheimurinn!
Hvar byrjar hann? Hvar endar hann?

Menn segja að einu sinni hafi ekkert verið til
og síðan hafi allt komið út úr pinkulitlu korni,
ég verð nú bara að játa að í þessu lítið skil
og held ég fari bara og gæði mér bara á skinkuhorni.
Já, við erum geimverur sem snúumst kringum sól
og stundum eru páskarnir og stundum eru jól
og sumir eru í stuttbuxum og aðrir eru í kjól
og margir liggja í sófum meðan nokkrir sitja í stól.
Hey hey hey – um hvað er þetta lag?
Hey hey hey – ég kem ei auga á það.
Trúlega um alheiminn sem enginn botnar í
en kannski bara samt um það að hafa oft kósí.

Alheimurinn!
Það botnar enginn í honum!
Alheimurinn!
Hann er svo svaka stór!
Alheimurinn!
Hvar byrjar hann? Hvar endar hann?

[af plötunni Dr. Gunni og vinir hans – Alheimurinn]