Ást & praktík

Ást & praktík
(Lag og texti: Hipsumhaps)

Mér er alveg sama um guð,
ég vil bara hafa stuð
en ef þú spyrð mig
hvað er í matinn
vil ég fá að leggja orð í belg.

Hvert eigum við að fara í frí?
Ég er alveg til í Tenerife.
Einhvers staðar þar sem
hægt er að bræða burtu áhyggjur og fá vín.

Eigum við að kaupa hund?
Hann gæti gefið gull í mund,
sleppa lausum úti á Álftanesi,
sjá hann hræða burtu máv og önd.

Hvernig eigum við að eignast pening?
því þessir vextir sökka heavy,
vinna í lottó eða happadrætti
virðist eina leiðin héðan út.

Hvar eigum við að vera um jólin?
Ætlarðu að fara í sama kjólinn?
Ég er ekki að dissa þig, ég er bara að pæla,
á ég að draga fram bláu skyrtuna?

Ekkert vera að taka úr vél,
ég var að hræra í hanastél.
Sestu í sófann elskan,
gerum þetta bara á morgun eða hinn
eða hinn
eða hinn.

Hvað finnst þér um blátt og bleikt?
Er það ekki frekar steikt?
Hvert er normið komið?
Hvernig á ég að vera?
Allt er orðið frekar breytt.

Veistu mig langar í barn,
er ég að vera ósanngjarn?
Veit ég þarf ekki að ganga með það
en mér finnst lífið snúast um það,
hjörtun samstillt, ekki öfug.
Er ég að setja of miklar kröfur?
Ég vil ekki vera einn eða tvö
heldur þrjú eða fjögur eða fimm
eða sex
eða sjö

eða átta,
samt ekki fleiri,
bara átta manna bíll.

[af plötunni Hipsumhaps – Ást & praktík]