Ástin bjarta (Þjóðhátíðarlag 1984)
(Lag og texti: Ástgeir Ólafsson (Ási í Bæ)
Innst í hjarta, ástin bjarta,
er að starta mér,
það er þessi eina, ástin sanna hreina,
sem aldrei kann að leyna sér.
Blóðið er á tampi, bruni sem í hampi,
blossandi lampi inn í mér.
Brosið hennar brosið,
beggja vara flosið,
ærir mig á einhvern veg.
Stilltu þig nú strengur,
stattu þig nú drengur,
þarna er hún svo ung og yndisleg.
Innst í hjarta, ástin bjarta,
er að starta mér,
sjáðu þessa lokka, allan þennan þokka,
það er sjokk ef illa fer,
steinar allir nikka, stjörnuaugun blikka,
stelpan kvikk og létt á brún.
það er þessi eina, þú veist hvað ég meina,
það má reyna segir hún.
Það má reyna, það má reyna,
það má reyna segir hún.
Innst í hjarta, ástin bjarta,
er að starta mér,
sjáðu þessa lokka, allan þennan þokka,
það er sjokk ef illa fer,
steinar allir nikka, stjörnuaugun blikka,
stelpan kvikk og létt á brún.
það er þessi eina, þú veist hvað ég meina,
það má reyna segir hún.
Það má reyna, það má reyna,
það má reyna segir hún.
Það má reyna, það má reyna,
það má reyna segir hún.
[af smáskífunni Björgvin Halldórsson – Ástin bjarta]














































