Augun þín blá

Augun þín blá
(Lag / texti: Jón Múli Árnason / Jónas Árnason)

Augun þín blá
eru mitt ljósaljós;
munnur þinn hýr
er mín rósarós.
Öll ertu lík
álfum á skóg
og því áttu skilið
hrósahrós.

Ekkert ég veit
fegurra fljóðafljóð;
þú hefur kveikt
í mér
glóðaglóð.
Væri ég skáld
skyldi ég kveða
þér öll mín bestu
ljóðaljóð.

Gerðu mér nú
dálitla
bónabón
þó að ég sé
mesta flónaflón.
Játaðu mér
tryggð þína og trú
svo við getum orðið
hjónahjón.

Og er hann blæs
norðan frá pólapól
verður þinn faðmur mitt
skjólaskjól.
Hjá þér ég vil
ævinni eyða
og halda öll mín
jólajól.
 
[m.a. á plötunni Lög Jóns Múla Árnasonar – ýmsir]