Barbra Riley

Barbra Riley
(Lag / texti: erlent lag / Jónas Árnason)

Ó, hefði ég dug, ó hefði ég þor
ég hjarta þínu stæli
og léti engan, engan ná
því aftur, Barbra Riley.

Mér finnst það skelfing fánýtt hjal
er fegurð þinni ég hæli
því til þess duga engin orð,
ó, ást mín, Barbra Riley.

Minn fót og hönd þú hlekkja mátt
og hafa mig að þræli.
Í áþján hjá þér yndi ég
um eilífð, Barbra Riley.

Mín augu mæna á þig bljúg
og eiga vildi ég bæli
í fleti við þinn fótagafl,
ó fagra Barbra Riley.

Ég beisk og söld mín tregatár
í tugum potta mæli
því engan gaum þú gefur mér,
ó grimma Barbra Riley.

Og það er ekki undur neitt
þó oft á laun ég skæli
því án þín lifað ei ég get,
mitt yndi, Barbra Riley.

Ég léti aftur augu mín
og andann Guði fæli
ef burtu fyrir fullt og allt
þú færir, Barbra Riley.

[engar upplýsingar um lagið á plötum]