Bent nálgast
(Lag / texti: XXX Rottweiler hundar og Gunnar Þórðarson / Ágúst Bent Sigbertsson og Lúðvík Páll Lúðvíksson)
Þú heyrir rímu mína einu sinni og þú færð hana á heilann.
Heyrir hana einu sinni enn og eina sem kemst að eru Rottweilar.
Á hverju götuhorni ferðu að sjá ásjónu mína.
Innan skamms ertu farinn að efast um geðheilsu þína.
Þú heyrir rödd mína í hausnum á þér og heyrir að ég er orðinn æstur.
Fer að ásækja þig í draumum og aðdáun þín breytist í ofsahræðslu.
Þú ert orðinn strengjabrúða og þú veist að ég er yfir þér.
Þú getur flúið en þú getur aldrei falið þig fyrir mér.
Þú ert á leið til sturlunar þannig tek þig af taugunum.
Getur aldrei gómað mig því þú sérð mig ekki fyrr en þú lokar augunum.
Þú fjarlægist raunveruleikann með hverju orði að mínum munni.
Ef Freddie Kruger væri til, myndi hann dreyma matraðir um mig.
Nú ertu orðinn holdgervingur illsku og í gegnum þig við myrðum.
Erum ekki í víðu heldur kyrtlum, er við ekki yrkjum heldur kyrjum.
Rímur af mínum syndum gefin út í fimmtán bindum.
Veruleikafirrtur, rís úr kistu, fyrstur – anti kristur.
Nú er sturlunin farinn að dreifast sem plága og allir mína rímu syngja.
Og ég leiði her uppvakninga og geðsjúklinga.
Með stanískum rímum drepið ófáa en enn ég tungu tálga.
Nostradamus spáði um komu mína Helter Skelter – Bent nálgast.
Skapaði heiminn á sjö dögum og eyði honum á jafn mörgum.
Náttúruhamfarir á fyrsta degi og engisprettur á öðurum.
Þriðja, fjórða, fimmta og sjötta mun ég bæta við ykkur kvölunum.
Kem svo sjálfur á sjöunda degi til að ráða ykkur af dögunum.
(x2)
Ég er Hann, ég er Jahve, Jah, ég er fokking Óðinn.
Fokk flæðismetafor mínar rímur eru syndaflóðið.
Eftir battl, ég heyri aldrei klapp, en ég elska grátina.
Til helvítis með jarðneskar eigur við skulum battla upp á sál þína.
Þú veist ekki í hverju þú lendir er koman er fyrir hendi.
Hlustaðu á rímurnar aftur á bak og þú heyrir djöfullegar athugasemdir.
Og jafnvel Auxpan öskrar á eftir mér að ég sé viðundur.
Og þeir sem byrja að fíla mig eru kallaðir djöfladýrkendur.
Listamaðurinn fyrrum þekktur sem Bent til þess að hrista upp í hlutunum.
Og nýja nafnið mitt er fimmhyrnd stjarna með hring utan um.
Andstæðingarnir grípa ekki hljóðnemann, þeir grípa í kross og beina honum að mér.
Og enginn stígur upp án Biblíu og með hvítlauk um hálsinn á sér.
En mig langar til að verða frægur rappari, fá samning og meika það.
En sviðsframkoman mín er þannig að Marilyn Manson myndi ekki einu sinni mæta á tónleika.
Hatur mitt er hreint, ríf úr mér svart hjartað til að sýna hversu ég reiður er.
Mun aldrei róast fyrr en það er endurvaktar mannfórnir til heiðurs mér.
Skapaði heiminn á sjö dögum og eyði honum á jafn mörgum
Náttúruhamfarir á fyrsta degi og engisprettur á öðurum.
Þriðja, fjórða, fimmta og sjötta mun ég bæta við ykkur kvölunum.
Kem svo sjálfur á sjöunda degi til að ráða ykkur af dögunum.
(x2)
[af plötunni XXX Rottweiler hundar – XXX Rottweiler hundar]














































