Birta (Eurovision – Ísland 2001)
(Lag og texti: Einar Bárðarson)
Óveður skall á mér,
skaut mér skelk í tá
og mér var brugðið.
Í hamagöngu sjónlaus
leist mér ekkert á,
allt öfugsnúið.
Í hálfum dansi, annars hugar,
þá lít ég upp og sé þig þar, oh…
Birta, bíddu‘ eftir mér.
Mér leiddist hér um tíma
en nú langar mig með þér.
Birta, bíddu‘ eftir mér.
Af öllu mínu hjarta
þá leita ég að þér.
Oh Birta, bíddu‘ eftir mér.
Nú hanga á mér fötin,
restin fauk mér frá,
var næstum búinn.
Líðanin er skrýtin
og skelfing litlaus já,
og farin trúin.
Í hálfum dansi, annars hugar,
þá lít ég upp og sé þig þar, oh…
Birta, bíddu‘ eftir mér.
Mér leiddist hér um tíma
en nú langar mig með þér.
Birta, bíddu‘ eftir mér.
Af öllu mínu hjarta
þá leita ég að þér.
Oh Birta, bíddu‘ eftir mér.
Í hálfum dansi, annars hugar,
þá lít ég upp og sé þig þar, oh…
Birta, bíddu‘ eftir mér.
Mér leiddist hér um tíma
en nú langar mig með þér.
Birta, bíddu‘ eftir mér.
Af öllu mínu hjarta
þá leita ég að þér.
Birta, bíddu eftir mér.
Mér leiddist hér um tíma
en nú langar mig með þér.
Birta, bíddu‘ eftir mér.
Af öllu mínu hjarta
þá leita ég að þér.
Oh Birta, bíddu‘ eftir mér.
[m.a. á plötunni Til hamingju Íslands: 20 ár í Eurovision]














































