Bréfið
(Lag / texti: Óðinn G. Þórarinsson / Einar Georg)
Ég skrifa bréf þó skaki vindar hreysi
og skrifta fyrir þér.
Ég tíunda mitt eigið auðnuleysi
og allt sem miður fer.Því hafin yfir hversdagsleikann gráa
ertu hjartans vina mín.
Ég ljósið slekk og langt í fjarskann blá a
leitar hugurinn til þín.
Svo ber ég eld að bréfkorninu mínu
þá batnar vistin hér.
Því fölur loginn fyllist brosi þínu
og þú fyrirgefur mér.
Og þannig brúar þessi litla týra
þagnarinnar mikla hyl.
Þú huldumey úr heimi ævintýr a
hefur aldrei verið til.
[m.a. á plötunni Danshljómsveit Friðjóns Jóhannssonar – Þá og nú: Lög Óðins G. Þórarinssonar]














































