Breytileg átt og hægviðri (Þjóðhátíðarlag 1949)
(Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Árni úr Eyjum (Árni Guðmundsson))
Breytileg átt um svalan sæ
og síld er varla nokkur
en allir vita, að Ási í Bæ
er Íslands besti kokkur.
Kveð ég um síldarkempurnar,
kaldur er norðan svalinn
meðan ég svíf með Sigga Mar,
sætmjúkur um Dalinn.
Um dalinn allan ólgar líf
og glymur af gleðilátum,
þar er dans og vín og víf
og varðeldar hjá skátum.
Bregðist ennþá síldin úr sjó
og svarri brim á rifi,
glaðir drykkju þreytum þó
– þjóðhátíðin lifi.
[engar upplýsingar um lagið á plötum]














































