Brim og boðaföll (Þjóðhátíðarlag 2008)

Brim og boðaföll (Þjóðhátíðarlag 2008)
(Lag og texti: Hreimur Örn Heimisson)

Sól, lýstu mína leið,
svo logi sundin blá á leiðinni til þín.
Nótt, leiðin verður greið.
Mér liggur lífið á, því ég verð senn á leiðarenda.

Kominn þessa leið,
einfaldlega til að segja þér,
án þín er ég bjargarlaus í neyð
en ekki þegar þú ert hér hjá mér.

Fyrst er augum á þig leit,
þá innra með mér fann að eitthvað snerti mig.
Þá og eins vel nú ég veit
að brim og boðaföll, gætu ekki stöðvað okkur.

Kominn þessa leið
einfaldlega til að segja þér,
án þín er ég bjargarlaus í neyð
en ekki þegar þú ert hér hjá mér.

Nú, nóttin læðist inn, og breiðir út sinn faðm,
Þú brosir til mín eins og í fyrsta sinn,
lífið byrjar hér, inni’ í Herjólfsdal

Kominn þessa leið
einfaldlega til að segja þér,
án þín er ég bjargarlaus í neyð
en ekki þegar þú ert hér hjá mér.

Já ég er kominn þessa leið
einfaldlega til að segja þér,
án þín er ég bjargarlaus í neyð
en ekki þegar þú ert hér hjá mér.
Ekki þegar þú ert hér hjá mér.
Ekki þegar þú ert hér hjá mér.

[m.a. á smáskífunni Land og synir – Brim og boðaföll]