Ef þú hugsar eins og ég
(Lag og texti: Unnsteinn Manúel Stefánsson, Vigdís Hafliðadóttir og Ragnhildur Veigarsdóttir)
Gleðilegt árið,
farsæl fetum nýjan veg!
Gleðilegt árið
ef þú hugsar eins og ég.
Ég get ekki tekið mark á þér.
Þú veist ekkert hver ég er.
En ég sé hvað þú lækar á twitter.
Eins og hvað?
Því ég veit alveg hvaða flokk þú kýst.
Ekki þann rétta, það er víst.
Þér er sama um umhverfið.
Þú átt pottþétt fleiri föt!
Þú borðar kjöt!
Ég er að reyna
Nei, ég er að reyna!
En viltu færa flugvöllinn?
Já takk elskan.
Meiri hálfvitinn.
Komdu á hærra plan.
Þú sýnir engan vilja til að skilja mig.
En allt í lagi.
Gleðilegt nýtt ár,
sama hver þú ert,
sama hvað þér finnst
og hvað þú hefur gert.
Ég vona’ að þessi hátið
verði dásamleg
ef þú hugsar eins og ég.
Gleðilegt árið,
farsæl fetum nýjan veg!
Gleðilegt árið
ef þú hugsar eins og ég.
Við eigum enga samleið hér.
Þú veist ekkert hver ég er.
Það er allt út í ITTALA hjá þér.
Hvað með það?
Ekki er ég að dæma hvað þér finnst.
Með versta smekk sem ég hef kynnst.
Þú hatar þjóðhátíð en fílar Eurovision.
Já því að Daði Freyr er æði!
Nei Daði Freyr er æði!
Horfirðu á Vikuna?
Veistu ég er bara Heima með Helga.
Oh þú ert svo mikið PAKK.
En allt í lagi.
Gleðilegt nýtt ár,
sama hver þú ert,
sama hvað þér finnst
og hvað þú hefur gert.
Ég vona’ að þessi hátið
verði dásamleg
ef þú hugsar eins og ég.
Gleðilegt árið,
(Gleðilegt árið)
farsæl fetum nýjan veg!
Gleðilegt árið
ef þú hugsar eins og ég.
Gleðilegt og geggjað!
Hátíðlegt og hellað!
Gæfuríkt og gott!
Fullkomið og FLOTT!
Ég vona’ að þessi hátið
verði dásamleg
ef þú hugsar eins og ég.
Ég sýni öllum skilning sem hugsa eins og ég.
Ég sýni öllum virðingu sem hugsa eins og ég.
Ég gef öllum tækifæri sem hugsa eins og ég
sem hugsa eins og ég!
Gleðilegt nýtt ár,
sama hver þú ert,
sama hvað þér finnst
og hvað þú hefur gert.
Ég vona’ að þessi hátið
verði dásamleg
ef þú hugsar eins og ég.
Gleðilegt árið,
(Gleðilegt árið)
farsæl fetum nýjan veg!
Gleðilegt árið
ef þú hugsar eins og ég.
Gleðilegt og geggjað!
Hátíðlegt og hellað!
Gæfuríkt og gott!
Fullkomið og FLOTT!
Ég vona’ að þessi hátið
verði dásamleg
ef þú hugsar eins og ég.
Ef þú hugsar eins og ég.
Ef þú hugsar eins og ég.
Ef þú hugsar eins og ég.
Ef þú hugsar eins og ég.
[af smáskífunni Flott & Unnsteinn – Ef þú hugsar eins og ég [ep]]














































