Ef þú kemur nær

Ef þú kemur nær
(Lag / texti: Hafsteinn Þráinsson og Una Torfadóttir / Una Torfadóttir

Það fjarar út,
sólin sest en ekki þú.
Stendur, gengur.
Vertu hér lengur.
Hvað ert þú að hugsa,
viltu deila því með mér?
Nei ókei, þá byrja ég.

Hélstu að
ég vildi endurskapa það
sem við þekkjum?
Nei, allt sem við gerðum,
kenndi okkur að elska og kveðjast.
Nú erum við hér
og við sjáum hvernig fer.

Ég hef engan áhuga á að
toga þig niður á jörðina.
Viljum bæði vera frjáls.
En hvernig fyndist þér að leyfa mér
að fljúga stundum við hliðina á þér?
Væri það svo slæmt?
Ég veit að þetta er hægt.
Ef þú kemur nær.

Ég reyni að
hætta að greina og lesa í allt.
Þora, treysta,
leita og finna.
Það þýðir ekki neitt
að giska á hvernig það fer.
Við eigum bara þetta hér.

Ég hef engan áhuga á að
toga þig niður á jörðina.
Viljum bæði vera frjáls.
En hvernig fyndist þér að leyfa mér
að fljúga stundum við hliðina á þér?
Væri það svo slæmt?
Ég veit að þetta er hægt.

Við þurfum ekkert að fljúga mjög hratt.
Við gætum líka bara svifið
en mundu að

Ég hef engan áhuga á að
toga þig niður á jörðina.
Viljum bæði vera frjáls.
En hvernig fyndist þér að leyfa mér
að fljúga stundum við hliðina á þér?
Væri það svo slæmt?
Ég veit að þetta er hægt.
Ef þú kemur nær.
Ef þú kemur nær.
Ef þú kemur nær.

[af plötunni Una Torfa – Sundurlaus samtöl]