Ef þú smælar framan í heiminn
(Lag og texti: Magnús Þór Jónsson (Megas)
Þó dömurnar þínar loks komnar hverfi sem skjótast,
hvað ætti það í rauninni að bögga þig?
Á sérhverjum ljósum – já og löggiltum bílastæðum,
þær leita á þig nýjar sem sitt vilja ljá þér og sig.
Þú sem lætur hvunndagsraunirnar ríða þér á slig.
Ef þú smælar framan í heiminn
þá smælar heimurinn framan í þig.
Ef þú smælar framan í heiminn
þá smælar heimurinn framan í þig.
Vindarnir þó gnauði og gusti um þig illir
og groddalegar hryðjurnar herji þig á.
Sólin mun skína og skattböðlar týna fælnum
og skuldir þær fyrnast og miðlarinn fer enn á stjá.
Þú sem lætur hvunndagsraunirnar ríða þér á slig.
Ef þú smælar framan í heiminn
þá smælar heimurinn framan í þig.
Ef þú smælar framan í heiminn
þá smælar heimurinn framan í þig.
Verðmæti þín þó vinki og hverfi út í bláinn
og það vitnist ekkert um ferðir þeirra meir.
Hafðu þá rænu aldrei að ætla þér rænu,
ekki aðeins í Hveragerði baða menn sig upp úr leir.
Þú sem lætur hvunndagsraunirnar ríða þér á slig.
Ef þú smælar framan í heiminn
þá smælar heimurinn framan í þig.
Ef þú smælar framan í heiminn
þá smælar heimurinn framan í þig.
Nóg er af tárum og takmarkalaust hve þeim rignir
svo tilgangs- og marklausum farvegum að streyma í.
Mundu að þau eru til þess eins að brúka í beitu
og til að bæta veðrið, nei vanþörf er sjaldnast á því.
Þú sem lætur hvunndagsraunirnar ríða þér á slig.
Ef þú smælar framan í heiminn
þá smælar heimurinn framan í þig.
Ef þú smælar framan í heiminn
þá smælar heimurinn framan í þig.
Og veröldin hún er flá, það er ljóst fyrir löngu
og lífið það hatar þig bæði hátt og lágt.
Því er að vera fremstur í fláttskap og vélum,
einatt flaggandi smælinu góða við fjandann í sátt.
Þú sem lætur hvunndagsraunirnar ríða þér á slig.
Ef þú smælar framan í heiminn
þá smælar heimurinn framan í þig.
Ef þú smælar framan í heiminn
þá smælar heimurinn framan í þig.
Kannski þig muni í maðkagilið án tafar
ef manntötur lífið er þér slíkt offermi.
En líttu í kringum þig, komdu auganu á það,
þeir klára sig best sem sig halda undir meðallagi.
Þú sem lætur hvunndagsraunirnar ríða þér á slig.
Ef þú smælar framan í heiminn
þá smælar heimurinn framan í þig.
Ef þú smælar framan í heiminn
þá smælar heimurinn framan í þig.
[m.a. á plötunni Megas – Paradísarfuglinn














































