Ég á líf (Eurovision – Ísland 2013)
(Lag og texti: Örlygur Smári og Pétur Örn Guðmundsson)
Lagði ég af stað í það langa ferðalag,
ég áfram gekk í villu eirðarlaus.
Hugsaði ekki um neitt, ekki fram á næsta dag.
Einveru og friðsemdina kaus.
Ég á líf, ég á líf,
yfir erfiðleika svíf.
Ég á líf, ég á líf vegna þín.
Þegar móti mér blæs
yfir fjöllin há ég klíf.
Ég á líf, ég á líf, ég á líf.
Ég skildi ekki ástina sem öllu hreyfir við,
þorði ekki að faðma og vera til.
Fannst sem ætti ekki skilið að opna huga minn
og hleypa bjartri ástinni þar inn.
Ég á líf, ég á líf,
yfir erfiðleika svíf.
Ég á líf, ég á líf vegna þín.
Þegar móti mér blæs
yfir fjöllin há ég klíf,
Ég á líf, ég á líf vegna þín.
Og ég trúi því,
já ég trúi því,
kannski opnast fagrar gáttir himins.
Yfir flæðir fegursta ástin,
hún umvefur mig alein.
Ég á líf, ég á líf,
yfir erfiðleika svíf.
Ég á líf, ég á líf vegna þín.
Þegar móti mér blæs
yfir fjöllin há ég klíf.
Ég á líf, ég á líf vegna þín.
Ég á líf, ég á líf, ég á.
[m.a. á plötunni Söngvakeppnin 2013 – ýmsir]














































