Ég les í lófa þínum (Eurovision – Ísland 2007)

Ég les í lófa þínum (Eurovision – Ísland 2007)
(Lag / texti: Sveinn Rúnar Sigurðsson / Kristján Hreinsson)

Ég les í lófa þínum leyndarmálið góða.
Ég veit það nú, ég veit og skil.
Það er svo ótalmargt sem ætla ég að bjóða,
já, betra líf, með ást og yl.

Í lófa þínum les ég það
að lífið geti kennt mér að
ég fæ aldrei nóg.
Ég vil fara frjáls með þér
og fljúga yfir land og sjó.

Það er svo augljóst nú að allir draumar rætast,
við höldum tvö, um höf og lönd.
Um lífið leikum við og lófar okkar mætast,
þá leiðumst við
já, hönd í hönd.

Í lófa þínum les ég það
að lífið geti kennt mér að
ég fæ aldrei nóg.
Ég vil fara frjáls með þér
og fljúga yfir land og sjó.

Ég ætla að fara alla leið
með ást á móti sorg og neyð.
Ég fæ aldrei nóg.
Ég vil fara frjáls með þér
og fljúga yfir land og sjó.

Í lófa þínum les ég það
að lífið getur kennt mér að
ég fæ aldrei nóg.
Ég vil fara frjáls með þér
og fljúga yfir land og sjó.

Ég ætla að fara alla leið
með ást á móti sorg og neyð.
Ég fæ aldrei nóg.
Ég vil fara frjáls með þér
og fljúga yfir land og sjó.

[m.a. á plötunni Söngvakeppni Sjónvarpsins 2007 – ýmsir]