Ég veit það (Eurovision – Ísland 2017)
(Lag og texti: Lily Elise Housh, Lester A. Mendez, Svala Björgvinsdóttir og Einar Egilsson)
Þú ert eins og eldur,
ör og stundum villtur.
En hvað með það?
Já hvað með það.
Eldurinn er fallegur,
bálið er svo bjart,
ornar mér og lýsir þá
myrkrið er svo svart.
En það þarf glóð
og þolinmæði.
Ég veit það.
Smá kjark og þor,
það kemur bráðum.
Ég veit það.
Þú þekkir mig
við sigrum saman tvö.
Sumir dagar eru ókei,
aðrir dimmgráir, en hey!
Ég veit það.
Við finnum leið
og fögnum lífinu.
Tilveran er ekki úthugsað plan,
einföld í fyrstu, svo hefst baráttan.
Beygjur og sveigjur og kvíði og alls konar rugl,
enginn sleppur við það allt saman.
En stundum sól.
Ó, já.
Þú ert mín sól.
Við skínum áfram.
Ég veit það.
Smá kjark og þor,
það kemur bráðum.
Ég veit það.
Þú þekkir mig;
við sigrum saman tvö.
Sumir dagar eru ókei,
aðrir dimmgráir, en hey!
Ég veit það.
Við finnum leið
og fögnum lífinu.
Ég veit það!
Smá kjark og þor
það kemur bráðum.
Ég veit það.
Þú þekkir mig;
við sigrum saman tvö.
Sumir dagar eru ókei,
aðrir dimmgráir, en hey!
Ég veit það.
Við finnum leið
og fögnum lífinu.
[m.a. á plötunni Svala – Ég veit það [ep]]














































