Enga fordóma (Eurovision – Ísland 2014)
(lag / texti: Heiðar Örn Kristjánsson / Heiðar Örn Kristjánsson og Haraldur F. Gíslason)
Hey! Lífið er of stutt fyrir skammsýni.
Úr vegi skal nú rutt allri þröngsýni.
Hlustið undireins.
Inn við bebebebebebe …
beinið erum við eins
og það bobobobobo-borgar
sig að brosa.
Burtu með fordóma
og annan eins ósóma.
Verum öll samtaka,
þið verðið að meðtaka
þótt ég hafi talgalla
þá á ekki að uppnefna.
Þetta er engin algebra,
öll erum við eins.
Hey! Hvort sem þú ert stór eða smávaxinn.
Hvort sem þú ert mjór eða feitlaginn.
Hlustið undireins.
Inn við bebebebebebe …
beinið erum við eins
og það bobobobobo-borgar
sig að brosa.
Burtu með fordóma
og annan eins ósóma.
Verum öll samtaka,
þið verðið að meðtaka
þótt ég hafi talgalla
þá á ekki að uppnefna.
Þetta er engin algebra,
öll erum við eins.
Bababababab …
Burtu með fordóma
og annan eins ósóma.
Verum öll samtaka,
þið verðið að meðtaka
þótt ég hafi talgalla
þá á ekki að uppnefna.
Þetta er engin algebra,
öll erum við eins.
Lalalalalalalala …
Burtu með fordóma
og annan eins ósóma.
Verum öll samtaka,
þið verðið að meðtaka
þótt ég hafi talgalla
þá á ekki að uppnefna.
Þetta er engin algebra,
öll erum við eins.
[m.a. á plötunni Pollapönk – Bebebe-besta pollapönkið]














































