Eyjan mín bjarta (Þjóðhátíðarlag 1974)
(Lag og texti: Gylfi Ægisson)
Eyjan mín bjarta nú leik ég þér lag,
svo ljómandi fögur þú ert.
Ég dái þig ávallt hvern einasta dag,
að dá þig er aldeilis vert.
Nú sárin þín gróa, nú vermir þig sól,
nú sóley á bökkum þér grær.
Og alls konar fuglar enn byggja sér ból,
í berginu, eyjan mín kær.
Fólkinu fjölgar í Eyjuna enn
og öllum ber saman um það.
Hér eigi það heima, hér eigi það senn
heimsins fegursta stað.
Byggðin hún stækkar nú dag eftir dag,
dafnar svo ótrúlegt er.
Ég eigna þér eyja mitt ljúfasta lag
og lagið nú hefurðu hér.
Núna hátíð fer í hönd,
halda mun ég tryggðarbönd
við þig elsku eyjan mín,
ávallt frá þér hlýja skín.
Fólkinu fjölgar í Eyjuna enn
og öllum ber saman um það.
Hér eigi það heima, hér eigi það senn
heimsins fegursta stað.
Byggðin hún stækkar nú dag eftir dag,
dafnar svo ótrúlegt er.
Ég eigna þér eyja mitt ljúfasta lag
og lagið nú hefurðu hér.
Núna hátíð fer í hönd,
halda mun ég tryggðarbönd
við þig elsku eyjan mín,
ávallt frá þér hlýja skín.
Fólkinu fjölgar í Eyjuna enn
og öllum ber saman um það.
Hér eigi það heima, hér eigi það senn
heimsins fegursta stað.
Byggðin hún stækkar nú dag eftir dag,
dafnar svo ótrúlegt er.
Ég eigna þér eyja mitt ljúfasta lag
og lagið nú hefurðu hér.
[af plötunni Í Dalnum – ýmsir]














































