Eyjanótt (Þjóðhátíðarlag 2022)
(Lag / texti: Klara Ósk Elíasdóttir, Alma Guðmundsdóttir og James Wong / Klara Ósk Elíasdóttir og Alma Guðmundsdóttir)
Ég man hvernig það var
að dansa alla nótt inni í Herjólfsdal.
Sé þig í ljósunum
með „Lífið er yndislegt” á heilanum.
Þú og þessi eyja,
ég er loksins heima,
sumar nætur aldrei deyja.
Ef þetta er síðasta nóttin sem við eigum hér
þá er mér sama svo lengi, sem ég er með þér.
Og þó að sumarið líði alltof fljótt
þá lifir að eilífu þessi eina nótt.
Í brekkunni ég leita að þér
því það lifir í glæðum sem kviknuðu hér.
Á morgun er óskrifað blað
svo að látum sem heimurinn standi í stað.
Þú og þessi eyja,
ég mun aldrei gleyma,
sumar nætur aldrei deyja.
Ef þetta er síðasta nóttin sem við eigum hér
þá er mér sama svo lengi, sem ég er með þér.
Og þó að sumarið líði alltof fljótt
þá lifir að eilífu þessi eina nótt.
Nanananananana…
Og þó að sumarið líði alltof fljótt
þá lifir að eilífu þessi Eyjanótt.
Þá lifir að eilífu þessi Eyjanótt.
[af smáskífunni Klara Elias – Eyjanótt]














































