FLOTT
(Lag / texti: Ragnhildur Veigarsdóttir og Vigdís Hafliðadóttir / Vigdís Hafliðadóttir)
Ég er á leið upp úr dalnum og í mér er kraftur
sem ég nota til að fara ekki þangað aftur.
Ég reyni að finna hvað lætur mér líða betur.
Hitti sálfræðinginn
og sjúkraþjálfarann minn
og ég veit að þett’er klisja en ég passa upp á blóðsykurinn
og nú meiri von ég finn.
FLOTT í dag.
Flottari’ en í gær.
Flottust á morgun.
FLOTT í dag.
Flottari’ en í gær alltaf flottari’ en í gær.
Ástin kemur, ástin fer en ég mun alltaf lifa með sjálfri mér
og ég er óháð þér
FLOTT.
Ég er að finna’ innri taktinn og læra á kerfið
og þó að sú vegferð sé mér ströng og erfið
mun ég finna hvað lætur mér líða betur.
Ekkert kaffi eftir eitt
sem mér þykir mjög leitt
og ég veit að þetta er klisja en ef ég geri’ ekkert þá gerist ekki neitt
og þá verður eitthvað breytt.
FLOTT í dag.
Flottari’ en í gær.
Flottust á morgun.
FLOTT í dag.
Flottari’ en í gær alltaf flottar’en í gær.
Ástin kemur, ástin fer en ég mun alltaf lifa með sjálfri mér
Og ég er óháð þér.
FLOTT.
Ég er að hreyfa mig.
FLOTT.
Heyra’ í vinunum.
FLOTT.
Iðka þakklæti.
FLOTT.
Hætt’ að deyfa mig.
FLOTT.
Prófa uppskriftir.
FLOTT.
Taka oftar til.
FLOTT.
Þreifa fyrir mér svo ég verði
FLOTT í dag.
Flottari’ en í gær.
Flottust á morgun.
FLOTT í dag.
Flottari’ en í gær alltaf flottari’ en í gær.
[af smáskífunni Flott – Flott [ep]














































