Gagnamagnið (Eurovision – Ísland 2020 (engin keppni haldin))

Gagnamagnið (Eurovision – Ísland 2020 (engin keppni haldin))
(Lag og texti Daði Freyr Pétursson)

Svona, síðan svona hér.
Bara ef allir dansa með.

Hæ, við erum komin
úr framtíðinni og líka utan úr geim.
Því eitthvað þarf að breytast
ef þið viljið halda í þennan heim.

Við höfum séð
hvað getur skeð.
Það gæti verið stutt í dánarbeð.
En ef við dönsum saman,
hreyfum líkamann.
Það væri gaman. Dansinn er:

Svona, síðan svona hér
og eftir það kemur þetta
bara ef að allir dansa með
þá ætti þetta mögulega að sleppa.

Þetta er allt annað.
Nú þurfum við að snúa við blaðinu.
Þvílíkt vel mannað.
Við erum öll í Gagnamagninu.

Og hvað með það
þó sumir muni afneita að
þið hafið engan annan felustað.
En ef við dönsum saman,
hreyfum líkamann.
Það væri gaman. Dansinn er:

Svona, síðan svona hér
og eftir það kemur þetta
bara ef að allir dansa með
þá ætti þetta mögulega að sleppa.

Við erum líka að tala um þig og þig og þig
og þig og þig og þig.

Svona, síðan svona hér
og eftir það kemur þetta
bara ef að allir dansa með
þá ætti þetta mögulega að sleppa.

[m.a. á plötunni Söngvakeppnin 2020 – ýmsir]