Glaðasti hundur í heimi

Glaðasti hundur í heimi
(Lag og texti: Gunnar L. Hjálmarsson, Ragnheiður Eiríksdóttir og Friðrik Dór Jónsson)

Ég er glaðasti, glaðasti, glaðasti hundur í heimi,
mér er klappað á hverjum degi og ég er að fíla‘ það.
Ég er glaðasti, glaðasti, glaðasti hundur í heimi,
lífið henti í mig beini og ég ætla að naga‘ það.

Ég hoppa út um holt og hóla,
bæði gelti og spangóla,
í dag ég ætla mér bara að dóla.
Ég er frjáls og engum háður,
bæði elskaður og dáður
í hundaskóla lífsins hef ég margar gráður.

Ég er glaðasti, glaðasti, glaðasti hundur í heimi,
mér er klappað á hverjum degi og ég er að fíla‘ það.
Ég er glaðasti, glaðasti, glaðasti hundur í heimi
lífið henti í mig beini og ég ætla að naga‘ það.

Bakvið kjötbúðina slóra,
hitti Konráð B og Óla,
þeir láta mig fá pulsu svaka stóra.
Ég ætla niðr‘í fjöru að skreppa,
gá hvort ég finni aðra seppa
ef ég sé hundsrass læt ég hann ekki sleppa.
(…hnus hnus)

Ég er glaðasti, glaðasti, glaðasti hundur í heimi
Mér er klappað á hverjum degi og ég er að fíla‘ það.
Ég er glaðasti, glaðasti, glaðasti hundur í heimi,
lífið henti í mig beini og ég ætla að naga‘ það.

[af plötunni Dr. Gunni og vinir hans – Alheimurinn]