Hættir (um 2000-2011)

Hættir

Upplýsingar um dúettinn Hættir eru af skornum skammti en hann var skipaður þeim fóstbræðrum Hauki Nikulássyni sem lék á gítar og hljómborð, og Gunnari Antonssyni sem lék á gítar – að öllum líkindum sungu þeir báðir.

Hættir léku á ýmsum samkomum á vegum félagssamtaka, s.s. árshátíðum og þess konar uppákomum en einnig mikið í einkasamkvæmum eins og afmælisveislum, endurfundasamkomum og slíku. Ekki liggur fyrir um hvenær nákvæmlega þeir hófu að starfa undir þessu nafni en hér er giskað á að það hafi verið um eða laust eftir aldamótin 2000, sveitin starfaði fram til ársins 2011 en Haukur lést þá um vorið.