Hátíðarnótt í Herjólfsdal (Þjóðhátíðarlag 1939)
(Lag / texti: Oddgeir Kristjánsson / Árni úr Eyjum (Árni Guðmundsson))
Hittumst bræður, í Herjólfsdal
hátíðarkvöld æskan á völd.
Fyllum háreistan fjallasal
fagnaðarsöng nóttin er löng.
Við drekkum glæsta guðaveig,
glaðir tæmum lífsins skál í einum teig.
Vonir rætast við söngvaseið,
sorgir og þraut líða á braut.
Gleðin brosir nú björt og heið,
bjargfugla hjal ómar í dal.
Á Fjósakletti brennur bál;
böndum ástar tengir nóttin sál við sál.
[m.a. á plötunni Tríó Glóðir – Bjartar vonir]














































