HGH tríóið var að líkindum sett saman fyrir skemmtiferð sem Hafnargönguhópurinn stóð fyrir haustið 1997 en HGH stóð einmitt fyrir Hafnargönguhópurinn, tríóið skemmti í þessari ferð um borð í skemmtisiglingaskipinu Árnesi en engar upplýsingar er að finna um meðlimi þess nema að þeir voru úr þessum hópi. Ferðin var farin í tilefni af fimm ára afmæli Hafnargönguhópsins.
Slíkar skemmtiferðir urðu að árlegum viðburði hjá Hafnargönguhópnum allt til ársins 2000 að minnsta kosti, og alltaf lék HGH tríóið um borð í Árnesi.
Frekari upplýsingar óskast um þessa sveit.














































