Hjarta
(Lag og texti: Hipsumhaps)
Einmana,
samt fleiri en ein dama.
Ást sem kemur og fer,
til í raun hvað sem er.
Funheitur,
sambönd er mitt eitur.
Sést vel á samskiptum,
tilraunir ganga ekki upp.
Segðu mér hvað það er sem ég get lagað
því það er eitthvað sem að ég hef eyðilagt.
Jarðaður
af eðalkvendi.
Skrifa smáskilaboð,
tek af mér mynd og sendi.
Það er eitthvað að hjartanu í mér,
það heyrist aukaslag,
ég þarf að fara í aðgerð
og það helst strax í dag.
Mig langar ekki að deyja,
ég er ekki tilbúinn það.
Langar að lifa lengur,
læra einn daginn að elska.
Það er eitthvað að hjartanu í mér,
það heyrist aukaslag.
Ég þarf að fara í aðgerð
og það helst strax í dag.
Ætla ég hingað
eða fer ég þangað,
erfitt að segja til
í miðju stjórnleysi.
Fastur í lúppu eins og hart teknólag,
langar að elska en er ófær um það.
Þrái að þrá,
langar að langa.
Ég er eins og babúska,
tóm inn í tómi inn í tómi.
Það er eitthvað að hjartanu í mér,
það heyrist aukaslag,
ég þarf að fara í aðgerð
og það helst strax í dag.
Mig langar ekki að deyja,
ég er ekki tilbúinn það.
Langar að lifa lengur,
læra einn daginn að elska.
Það er eitthvað að hjartanu í mér,
það heyrist aukaslag.
Ég þarf að fara í aðgerð
og það helst strax í dag.
Mig langar ekki að deyja,
ég er ekki tilbúinn það.
Langar að lifa lengur,
læra einn daginn að elska.
[af plötunni Hipsumhaps – Ást & praktík]














































