Hljómsveit Baldurs Loftssonar (um 1960)

Hljómsveit Baldurs Loftssonar

Baldur Loftsson á Breiðási í Hrunamannahreppi starfrækti hljómsveit í eigin nafni undir lok sjötta áratugar síðustu aldar, sveitin lék að minnsta kosti árin 1958 og 59 en að öðru leyti vantar upplýsingar um starfstíma sveitarinnar.

Meðlimir Hljómsveitar Baldurs Loftssonar voru auk Baldurs sjálfs sem lék á harmonikku og saxófón, þeir Loftur Loftsson kontrabassaleikari (bróðir Baldurs), Ásbjörn Österby saxófónleikari, Arnþór Guðnason trommuleikari, Þráinn Kristjánsson píanóleikari og Gunnar Guðmundsson söngvari.

Óskað er eftir frekari upplýsingum um þessa sveit.