
Hljómsveit K.R. hússins 1936
Á árunum 1936 til 39 starfaði hljómsveit sem virðist hafa verið eins konar húshljómsveit í K.R. húsinu en sveitin lék á þeim árum margsinnis þar undir nafninu Hljómsveit K.R. hússins. Svo virðist sem K.R. húsið hafi verið Báran (Bárubúð).
Árið 1936 munu meðlimir sveitarinnar hafa verið þeir Óskar Cortes fiðlu- og saxófónleikari, Bjarni Guðjónsson trommuleikari, Rúdolf Kamphausen trompet- og fiðluleikari, Gísli Einarsson harmonikku- og saxófónleikari og Hafliði Jónsson píanóleikari en annars liggja ekki fyrir upplýsingarum um skipan hennar á öðrum tímum. Um svipað leyti var starfandi sveit sem kölluð var Nýja bandið og lék oft í K.R. húsinu – hugsanlega var um sömu sveit að ræða en sú var sjö manna og starfaði undir stjórn Tage Möller píanóleikara.














































