
Hljómsveit Þorkels Jóhannessonar
Hljómsveit Þorkels Jóhannessonar lék um nokkurra mánaða skeið frá upphafi árs 1954 og fram á haust á dansleikjum í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði en sveitin gerði líklega út þaðan, sennilegt hlýtur að teljast að sveitin hafi þegar verið stofnuð á árinu 1953.
Engar frekari upplýsingar er að finna um þessa sveit, Erla Bára Andrésdóttir söng stungum með henni í Alþýðuhúsinu og Þorkell Jóhannesson hljómsveitarstjóri var að öllum líkindum trompetleikari en upplýsingar um aðra meðlimi sveitarinnar og hljóðfæraskipan hennar vantar














































