Homebreakers (2003-05)

Hljómsveit sem bar nafnið Homebreakers starfaði um skeið á höfuðborgarsvæðinu og lék í nokkur skipti opinberlega á árunum 2003 til 2005, sveitin sem að megninu til var skipað konum lék það sem skilgreint var sem kvennakántrí en svo mun finnskur tangó hafa tekið yfir.

Meðlimir Homebreakers voru þau Olga [?] hljómborðsleikari, Riina Finnsdóttir gítarleikari, Elín [?] bassaleikari, Ólöf Sigríður Valsdóttir söngkona og Kristján Freyr Halldórsson trommuleikari.

Hugsanlega hafði nafni hljómsveitarinnar verið breytt í Hjónadjöflarnir undir lokin en frekari upplýsingar óskast um þessa sveit.