Homo sapiens
(Lag og texti: Gunnar L. Hjálmarsson)
Apar í skóginum
kviðu‘ ekki vetrinum,
þeim lá aldrei á
og hugsuðu bara smá,
svo stækkuðu heilarnir
og þá komu allir fokking feilarnir
því hausar fylltust af tómri vitleysu,
trúarbulli og stjórnmálaþvælu – hei.
Viðlag
Ég og þú
já við getum öfundað hina apana
að vera‘ ekki homo sapiens
hú hú – homo sapiens
homo ho sapiens.
Í álverksmiðju
á gleðipillu
aumingja sapiens
er kominn á lokaséns
en hinir aparnir þeir verða aldrei svona þunglyndir
því að þeir hafa bara ekki vit á því
og pæla bara í því sem eitthvað vit er í – hei.
Viðlag
[af plötunni Dr. Gunni – Stóri hvellur]














































