Honný

Honný
(Lag og texti: Fannar Ingi Friðþjófsson)

Ég og þú
gætum verið alveg
geggjað par.
Ég verð þér trúr,
brosi allan daginn
sama hvað.
Ó honný þú
færð mig alveg til að
spangóla.

Svona er
Svona er
Svona er
Svona er
Svona er að vera ógeðslega ástfanginn.

Ég kaupi vönd,
gef þér á konudaginn
og nýtt skópar.
Ferðumst um lönd,
skoðum allan heiminn
með bakpoka.
Ljáðu mér hönd,
stígum cha cha cha
um göturnar.

Svona er
Svona er
Svona er
Svona er
Svona er
Svona er
Svona er
Svona er
Svona er að vera ógeðslega ástfanginn.

Þegar þú
klæðist í sparidressið,
þá hneppi ég það.
Við kaupum hús,
fáum lán í hvelli
og lyklapar.
Svo heyrist vú,
það bárust nýjar fréttir
um lítinn bumbubúa.

Svona er
Svona er
Svona er
Svona er
Svona er
Svona er
Svona er
Svona er
Svona er að vera ógeðslega ástfanginn.

Andartak gleymi hver ég er
og verð alveg dofinn
en þú veist vel hvað býr í mér,
hvar hún sefur vonin.
Andvaka nætur yfir þér,
ég get ekki sofið,
þú lýsir ljós í hjarta mér,
á því er enginn rofi.

[af plötunni Hipsumhaps – Best gleymdu leyndarmálin]