Hryssan mín blá

Hryssan mín blá
(Lag og texti: Bjarni Hafþór Helgason)

Hryssan mín blá, hryssa, hryssan blá,
segðu þeim okkar ævintýrum frá.
Sjaldan við vorum heimaslóðum á
en verðum alltaf þeim frá – já.

Manstu, mín kæra, gresjurnar,
Akrafjöllin, Esjurnar?
Já manstu‘ er við riðum dalina
og alla fjallasalina?

Hryssan mín blá, hryssa, hryssan blá,
segðu þeim okkar ævintýrum frá.
Sjaldan við vorum heimaslóðum á
en verðum alltaf þeim frá – já.

Manstu er við hittum Rauð á Stöng
og þú heyrðir svanasöng?
En folaldið hvíta seinna varð
úti við Svartaskarð.

Hryssan mín blá, hryssa, hryssan blá,
segðu þeim okkar ævintýrum frá.
Sjaldan við vorum heimaslóðum á
en verðum alltaf þeim frá – já.

Þegar ég lít á farinn veg
heillar mig minningin.
Þökkuð er sambúð yndisleg
og líka viðkynningin.

Hryssan mín blá, hryssa, hryssan blá,
segðu þeim okkar ævintýrum frá.
Sjaldan við vorum heimaslóðum á
en verðum alltaf þeim frá – já.

[m.a. á plötunni Bjarni Hafþór – … með á nótunum]