
Hughrif
Hljómsveit sem bar nafnið Hughrif starfaði á höfuðborgarsvæðinu árið 2008 og var meðal þátttökusveita í Músíktilraunum þá um vorið.
Meðlimir Hughrifa voru þeir Finnur Sigurjón Sveinbjarnarson hljómborðsleikari, Sigurður Ingi Einarsson trommuleikari, Magnús Ingvar Ágústsson bassaleikari, Baldvin Ingvar Tryggvason gítarleikari og Ingvar Bjarki Einarsson gítarleikari – ekki eru upplýsingar um hver annaðist sönginn.
Sveitin komst ekki áfram í úrslit Músíktilraunanna þrátt fyrir jákvæða umfjöllun um hana í fjölmiðlum. Þeir félagar störfuðu þó eitthvað áfram og léku meðal annars á tónleikum í Hinu húsinum um haustið en virðist svo hafa hætt störfum fljótlega eftir það, um það leyti hafði sveitin auglýst eftir söngvara.














































