
Húnarnir
Hljómsveit sem bar nafnið Húnarnir starfaði sumarið 2014 og var hugsanlega sett sérstaklega saman fyrir ferð Íslenska vitafélagsins til Noregs á norræna strandmenningarhátíð en sveitin kynnti þar íslenska tónlist í tengslum við strandmenningu. Svo virðist sem sveitin hafi einvörðungu starfað í kringum þessa hátíð en verið lögð niður að henni lokinni.
Húnana skipuðu þau Snorri Guðvarðsson gítarleikari, Linda Jónsdóttir harmonikkuleikari, Eiríkur Stephensen bassaleikari og Ármann Einarsson [?].














































