
Husband
Hljómsveit sem bar nafnið Husband starfaði um áratugar skeið og var skipuð hafnfirskum tónlistarmönnum.
Husband mun hafa verið stofnuð árið 2006 og munu meðlimir sveitarinnar í upphafi hafa verið mjög ungir að árum því hún var meðal þátttökusveita í Músíktilraunum vorið 2010, og hafði þá verið starfandi í fjögur ár. Meðlimir sveitarinnar voru 2010 þeir Ellert Hafsteinsson bassaleikari, Sigurjón Ólafsson trommuleikari, Óli Hrafn Jónasson hljómborðsleikari, Brynjar Örn Björgvinsson gítarleikari og Haukur Njálsson gítarleikari, sveitin komst í úrslit Músíktilrauna en raðaði sér þar ekki meðal efstu sveita.
Husband mun hafa verið instrumental band og lék það sem skilgreint var sem djassskotið síðrokk, ekki fór mikið fyrir sveitinni á tónleikasviðinu eftir Músíktilrauna þátttökuna en hún lék þó á tónlistarhátíð sem haldin var á Dönsku kránni sumarið 2012. Hljómsveitin mun hafa verið starfandi til 2016 eða um það leyti en hætti þá störfum.














































