Hvert sem er (Eurovision – Ísland 2000)

Hvert sem er (Eurovision – Ísland 2000)
(Lag / texti: Örlygur Smári / Sigurður Örn Jónsson)

Ef þú værir hér
hérna við hliðina á mér,
við færum saman hönd í hönd
og okkur héldu engin bönd.
Við bæði vitum að við getum gert hvað sem er
og leggjum allt að veði vinur hvernig sem fer.

Gefðu, gefðu, gefðu eitt, gefðu allt,
gefðu þig hundrað þúsundfalt
og förum saman hvert sem er.
Já, komdu nú með mér.

Þú veist eins og er
að með þig við hliðina á mér.
Ég geri allt sem ég vil
og kannski meira til.
Við þurfum ekkert nesti nema náttúrunnar seið
Og ævintýri eignumst við alveg um leið.

Gefðu, gefðu, gefðu eitt, gefðu allt,
gefðu þig hundraðþúsundfalt
og förum saman hvert sem er.
Já, komdu nú með mér.

Nú loks ertu hér
hérna við hliðina á mér
og við förum hönd í hönd
og okkur halda engin bönd.
Við förum yfir stokka og steina
Sökkvum yfir sand og hleina
Og finnum landið fyrirheitna fyrir okkur ein.

Gefðu, gefðu, gefðu eitt, gefðu allt,
gefðu þig hundraðþúsundfalt
og förum saman hvert sem er.
Já, gefðu, gefðu, gefðu eitt, gefðu allt,
gefðu þig hundraðþúsundfalt
og förum saman hvert sem er.

[óútgefið]