Dúett sem bar heitið Hvítir mágar bar sigur út býtum í jólalagasamkeppni Rásar 2 í desember 2004, með laginu Uppáhalds hátíðin mín.
Afar takmarkaðar upplýsingar er að finna um Hvíta mága, að öllum líkindum var ekki um að ræða starfandi sveit heldur samstarf í kringum þetta eina verkefni. Egill Halldórsson gæti hafa verið annar meðlimur dúettsins en nafn hins er óþekkt, því er óskað eftir frekari upplýsingum um Hvíta mága.














































