Í grænum mó
(Lag / texti: Sigfús Halldórsson / Gestur Guðmundsson)
Ég leit þau fyrst einn dag, einn sumardag
með drifhvít morgunský,
í grænum mó, þau léku fagurt lag
og léku það á ný.
Í lágri þúfu í þessum græna mó
var þeirra litla bú,
var þeirra yndi umlukt bjartri ró
og einni von og trú.
Og þegar sólin hneig í hafið rótt
og hvarf í roðaglóð
ég sat þar oft og sat þar fram á nótt
við söng og ástarljóð.
Og engin ást er sælli í óði‘ og söng
en söng og óði þeim.
Og hvaða eilífð er þeim nógu löng
sem elskast hjörtum tveim?
Sem elskast hjörtum tveim.
[m.a. á plötunni Vilhjálmur Vilhálmsson – Dans gleðinnar]














































