Í Herjólfsdal (Þjóðhátíðarlag 1981)
(Lag og texti: Ingólfur Jónsson)
Nú himneskt er í Herjólfsdal,
svo hefjum söng og gleði
því þjóðhátíð hér halda skal,
þá blanda allir geði.
Gleðifundur, glettnishjal,
gönguferðir um hamrasal,
tveggja sálna tal.
Vinum góðum vaka með,
þá vefja örmum skal.
Já vinum góðum vaka með,
þá vefja örmum skal.
Í ágúst húmi ástarfund,
er unaðslegt að eiga.
Hátíð fyrir hal og sprund
og höfga drykki teyga.
Spranga, sparka bolta um stund
nú sólin roðar Eyjasund,
lifum léttri lund.
Vinum góðum vaka með,
og örmum vefja sprund.
Já vinum góðum vaka með
og örmum vefja sprund.
[af smáskífunni Ingólfur Jónsson og synir – Í Herjólfsdal]














































