Í nafni frjálshyggju og frelsis

Í nafni frjálshyggju og frelsis
(Lag og texti: Bubbi Morthens)

Ekki er neinn réttlátur, ekki neinn.
Ekki er neinn vitring að sjá.
Fæstir leita lengur herrans
sem líf sitt gaf fyrir þá.
Nú ráða ræningjar jörðinni.
Rándýr sem heimta blóð.
Tortíming, eymd eru alls staðar.
Ekker líf þrífst í þeirra slóð.

Veg friðarins vilja ekki þekkja,
vargar sem fólkið blekkja.
Gera börnin að morðingjum.
Mæður að hræætum.
Feður að aumingjum.
Sundra fjölskyldum.
Allt í nafni frjálshyggju og frelsis.

Þú sem felur þinn eigin ótta
elur hatur í brjósti þínu,
lítur aldrei í augu barna þinna
sem allt skilja í hjarta sínu,
óspillt eru ennþá og saklaus.
Eftir hverju ertu að bíða.
Þau þurfa á aga og ást að halda.
Fálæti þitt fyllir þau kvíða.

Veg sannleikans viltu ekki þekkja.
Lyginga lætur þig hlekkja.
Samviska þín sefur.
Græðgin ekkert gefur.
Dóminn enginn tefur,
hrokinn þig hefur
blindað í nafni frjálshyggju og frelsis.

Þingmenn feður fólks og þjóðar
fullir af spillingu verja
rétt þeirra ríku til þess að valta
yfir ráðþrota fólkið og berja.
Trúlaus lýðurinn lánlaus reikar
lamaður, fullur af dofa.
Prestarnir prúðir í vinnuna mæta.
Þeir vekja engan sem vill sofa.

Veg réttlætis vilja ekki þekkja
í vörninni þeirra er skekkja.
Í hjartanu vita
að lygin kostar svita
rænir þá næturhita.
Engill dauðans mun þeirra vitja.
Allt í nafni frjálshyggju og frelsis.

Menn trúa á gullið, guð er ekki til
en gott er að nefna hann stundum.
Fullir þeir eru bölvunar og beiskju
á bræður sína siga þeir hundum.
En guð er til, sama hvað þeir segja.
Hlustaðu á þegar þeir tala.
Þeir mæla það sem hentar hverju sinni.
Á fáfræði og fordómum ala.

Veg ljóssins vilja ekki þekkja
vargar sem fólkið blekkja.
Hræsnin í hásæti.
Lýðskrumalæti.
Rotið innræti.
Hýenur í leit að æti.
Allt í nafni frjálshyggju og frelsis.

Dómskerfið kalkað grafarstæði.
Kuldinn þar smælingjann bítur.
Unga manninn á Hraunið senda
meðan skilorðið hvítflibbinn hlýtur.
Einn daginn þeir þurfa að sækja til saka.
Sú nótt mun reynast þeim erfið.
Þegar undirstöður alls munu hrynja,
heimurinn þeirra og kerfið.

Veg friðarins vilja ekki þekkja
vargar sem fólkið hlekkja.
Gera börnin að morðingjum.
Mæður að hræætum.
Feður að aumingjum.
Sundra fjölskyldum.
Allt í nafni frjálshyggju og frelsis.

[af plötunni Bubbi Morthens – Arfur]